Felix Bergsson heldur útgáfutónleika Borgarinnar fimmtudaginn 28. ágúst 2014 á Café Rósenberg í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og aðgangseyrir er 2200 krónur. Aðeins er selt inn á staðnum og hefst miðasala kl. 19.00. Geisladiskurinn Borgin verður einnig til sölu á tónleikunum.
Með Felix á tónleikunum verður einvalalið tónlistarmanna. Karl Olgeirsson spilar á hljómborð og píanó, Stefán Már Magnússon á gítar, Bassi Ólafsson trommar og bassann plokkar Friðrik Sturluson. Nýja platan, Borgin, verður öll leikin og svo læðast inn lög af Þögulli nóttinni og nokkur tökulög sem Felix hefur sungið í gegnum tíðina.
Felix setti nýtt lag af Borginni í spilun nýlega. Það heitir Gemmér annan séns og er eftir Ottó Tynes. Textinn er eftir Felix.