Nýja platan heitir Borgin

Ný plata Felix Bergssonar hefur hlotið heitið Borgin.  Platan kemur út 19. júní.

Á Borginni eru 10 ný popplög eftir marga af þekktari lagahöfundum þjóðarinnar.  Þeir eru Jón Ólafsson (sem einnig útsetur og stjórnar upptökum), Karl Olgeirsson, Ottó Tynes, Sigurður Örn Jónsson, Dr. Gunni og Eberg.  Felix semur átta texta á plötuna en hina tvo eiga Dr. Gunni og Bjartmar Guðlaugsson.

Nú er lagið Næturljóð eftir Jón Ólafsson í spilun á útvarpsstöðvum en næsti singull fer í spilun á næstu dögum.  Það er lagið Horfi á eftir þér eftir Eberg.  Hægt er að nálgast Næturljóð á Spotify, Tónlist.is og Itunes

Forsala á Borginni er hafin.  Til að panta plötuna er hægt að skrifa pöntun á netfangið felix@senan.is