Við erum ákaflega stolt að frumsýna nýtt myndband við lagið Næturljóð en það lag hefur hljómað á útvarpsstöðvum undanfarið.
Myndbandið við Næturljóð var gert í London og Crawley af þeim Heiðari Mar Björnssyni leikstjóra og Söru Hjördísi Blöndal, listrænum stjórnanda. Bob Ram sá um klippingu. Lagið er eftir Jón Ólafsson og textinn er eftir Felix Bergsson. Jón Ólafsson útsetur lagið og stjórnar upptökum. Lagið má kaupa á www.tonlist.is og það verður á plötunni „Borgin“ sem Felix Bergsson sendir frá sér síðar á árinu.