Útgáfu Borgarinnar, nýrrar sólóplötu Felix Bergssonar, hefur verið frestað um viku. Platan kemur nú út fimmtudaginn 26. júní. Ástæðan er sú að prentun og þrykk á umslagi tekur aðeins lengri tíma en áætlað var.
Nýtt lag í spilun á útvarpsstöðvum er „Horfði á eftir þér“ eftir Eberg og Felix Bergsson.