Gleðilegt ár!

Felix Bergsson óskar öllum lesendum síðunnar gleðilegs árs og farsældar á árinu 2013 með þökk fyrir stuðning á liðinum árum. 

Þetta ár mun vonandi verða gjöfult hjá Felix sem stefnir á að koma með nýja hljómplötu á árinu en fyrsta smáskífan af henni er Eydís sem heyrðist á útvarpsstöðvum fyrr í vetur.  Að auki er Felix nú á fullu að vinna í öðrum verkefnum sem munu verða tilkynnt þegar fram líða stundir.