Það er næstum óþarfi að kynna listamennina sem koma að söng og leikdagskránni Lögin úr teiknimyndunum í Hofi Akureyri 9. mars og Salnum Kópavogi 8. mars. Valgerður Guðnadóttir, Þór Breiðfjörð og Felix Bergsson eru meðal þekktustu söngvara og leikara þjóðarinnar. Raddir Felix og Valgerðar eru hluti af æsku margra barna þar sem þau hafa sungið og leikið fjöldan allan af Disney-persónum á löngum og glæsilegum ferli. Þar má nefna Aladdin, Konung ljónanna, Pocahontas, Mulan, Litla hafmeyjan og Magga Víglunds. Þór er nýfluttur heim eftir farsælan feril erlendis og hann söng sig inn í hjörtu landsmanna í söngleiknum Vesalingunum á síðasta ári.
Á tónleikunum munu þau mæta í fantaformi og njóta þess að syngja frábær lög úr vel þekktum teiknimyndum og söngleikjum. Þetta verða glæsilegir tónleikar, stútfullir af vel þekktum perlum Disney, söngleikja og kvikmynda. Meðal þess sem sungið verður eru lög úr Aladdin, Konungi ljónanna, Apalífi, Hundalífi og Söngvaseið. Þá verður saga nokkurra mynda rakin á milli laga.
Vignir Þór Stefánsson stjórnar þriggja manna hljómsveit af alkunnri snilld ásamt því að spila á píanó.
Miðasala er á www.salurinn.is og www.menningarhus.is