Vinna við plötu gengur vel

Vinna við nýja sólóplötu Felix Bergssonar gengur vel.  Nú hafa 8 lög verið tekin upp í hljóðveri Jóns Ólafssonar, Eyranu og í hljóðveri feðganna Bassa Ólafssonar og Labba í Mánum á Selfossi.  Það er Jón Ólafsson sem stjórnar upptökum og útsetur ásamt Felix.  Höfundar laganna eru Dr. Gunni, Eberg, Karl Olgeirsson, Sigurður Örn Jónsson og Jón Ólafsson.  Stefnt er að því að platan verði kláruð á vordögum og komi út í sumar.  Næsta smáskífa hefur verið valin.  Það er Næturljóð eftir Jón Ólafsson við texta Felix Bergssonar.  Lagið verður sett í spilun á næstu vikum.

heimasida-15