Græni hatturinn á Sumardaginn fyrsta!

Nú er það komið á hreint að Felix heldur tónleika ásamt Jóni Ólafssyni og Stefáni Má Magnússyni á Græna hattinum á Sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012.  Á tónleikunum munu þeir félagar syngja og spila lögin af Þögulli nóttinni ásamt öðrum lögum sem hafa komið við sögu á löngum ferli.  Sögur og skemmtilegheit og notaleg kvöldstund á besta tónleikastað landsins!  Miðaverð er 2000 kr en viðskiptavinir Landsbankans fá 20% afslátt.