Vorið er komið

Felix verður á ferð og flugi á næstunni um landið og hittir sumarþyrsta landsmenn.  Laugardaginn 5. maí mun hann stjórna opnun Bauhaus verslunarinnar en sú opnun fer fram kl. 7.00 að morgni!  Felix ætlar að taka lagið og stjórna happadrætti sem er óneitanlega stórglæsilegt.  10 vinningar að upphæð 100.000 krónur verða dregnir út kl. 7.50.  Það verður athyglisvert að sjá hver mætingin verður.

Viku síðar, eða laugardaginn 12. maí mun Felix ásamt Gunna vini sínum Helga stjórna Leikjadegi Norðuráls á Akranesi.  Þar fara starfsmenn Norðuráls, fjölskyldur þeirra og gestir í skemmtilega og einfalda leiki og geta unnið sér inn verðlaun og önnur skemmtilegheit.  Þeir félagar munu taka lagið og gleðja gesti og gangandi.

Gunni og Felix eru á fullu að bóka sumarið, saman og í sitthvoru lagi og nú er t.d. komið á hreint að þeir verða með vinum sínum á Akureyri á 17. júni.  Þar verður sungið og trallað og tjúttað.  Áhugasamir geta skrifað þeim félögum á netföngin felix@senan.is eða gunnihel@centrum.is