Kynnir í Eurovison 2014

Felix Bergsson er nú staddur með Pollapönki og íslenska Eurovision hópnum í Kaupmannahöfn en eins og í fyrra verður Felix kynnir í sjónvarpsútsendingum RÚV frá Eurovision.  Útsendingarnar verða 6., 8., og 10. maí úr B&W höllinni en hún var áður skipasmíðastöð.  Pollapönk stíga á svið í fyrri undanúrslitariðlinum þriðjudaginn 6. maí.  Síðari undanúrslitariðillinn verður svo fimmtudaginn 8. maí og úrslitin sjálf laugardaginn 10. maí.  Þar vonum við að sjálfsögðu að Pollapönk verði á meðal keppenda!  Útsendingarnar hefjast allar kl. 19.00.

Fylgist með Felix og Eurovision á RÚV.