Jóhannes Haukur Jóhannesson
Ernst

Jóhannes Haukur útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2005 og var lausráðin við þjóðleikhúsið í sýningunni Dínamít í lok síðasta leikárs. Kabarett er þriðji söngleikurinn sem hann tekur þátt í atvinnuleikhúsi. Jóhannes lék Rabba í Grease í Borgarleikhúsinu og Claude Bukowski í Hárinu sem sýnt var í Austurbæ. Þá er hann hluti af Hinu Lifandi Leikhúsi sem hefur verið starfandi síðan 2003. Samhliða leikarastarfinu er Jóhannes starfandi hljóðfæraleikari og söngvari og hefur sungið í tveimur óperuuppfærslum.

 
     

Til baka...