Felix Bergsson
Cliff Bradshaw

Felix Bergsson lauk leiklistarnámi frá Queen Margaret University College í Edinborg árið 1991. Hann hafði þá þegar vakið athygli sem söngvari Greifanna, meðal annars í hinu vinsæla lagi Útihátíð. Felix fór í framhaldsnám í leiklist í Central School of Speech and Drama í London árin 1997 og 1998.

Felix hefur leikið jöfnum höndum í stóru leikhúsunum og með sjálfstæðum leikhúsum. Meðal hans helstu hlutverka eru Júngkærinn í Íslandsklukku Halldórs Laxness, Tony í West Side Story, Þór í Gauragangi, Nornin í Skilaboðaskjóðunni, Eddy í Blóðbræðrum, Fattur í Hatti og Fatti, Láki í Íslensku mafíunni, Ljóti andarunginn í Honk, George í Kvetch og Jerry í Svikum. Felix er meðal stofnenda leikhópsins Bandamanna, en sá hópur hefur sýnt víða um heim. Þá stofnaði Felix leikhópinn Á senunni ásamt Kolbrúnu Halldórsdóttur. Felix skrifaði og lék fyrsta verk hópsins, Hinn fullkomna jafningja, sem vakti feikilega athygli jafnt innanlands sem utan. Þá fékk hópurinn hin íslensku leiklistarverðlaun, Grímuna, fyrir sýningu ársins, Kvetch, árið 2003. Meðal annarra sýninga hópsins eru Paris at night, Svik e. Harold Pinter og Ævintýrið um Augastein.

Felix hefur líka komið að gerð sjónvarpsefnis í þáttum eins og Slett úr klaufunum, Stundin okkar, Fyrirgefðu og Popppunktur. Felix og Gunnar Helgason gerðu leikna 24 þátta röð fyrir RÚV, jóladagatalið Leitina að Völundi. Samstarf Gunna og Felix á sviði vettvangi barnaefnis er landsfrægt og hafa þeir félagar sent frá sér myndbandsspólur, geisladiska og hljóðsnældur með leiknu efni. Nýjasta ævintýrið heitir Sveitasæla og kom út í október 2003. Þá lék Felix í kvikmyndunum Íslenska draumnum, Karlakórnum Heklu og Strákunum okkar. Hann hefur skrifað barnabók, Ævintýrið um Augastein, fjögur leikrit og ótal dægurlagatexta.

Felix var formaður í Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa 2002-2004, sat í stjórn Höfuðborgarstofu og er varamaður í stjórn Ferðamálaráð

 
     

Til baka...